Fólk gleymi ekki ferðalögum í svefnherbergið

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar. Ljósmynd/Aðsend

Kappsmál stjórnvalda á að vera að stuðla að frekari barneignum og þess vegna er það beinlínis í hag okkar að reka fjölskylduvæna pólitík. Við þurfum nefnilega fleiri vinnandi hendur til lengri tíma litið og fleiri lítil börn munu til lengri tíma litið beinlínis bæta lífskjör okkar allra. Því þurfi að hvetja frjósemisgyðjuna til dáða.

Þetta kom fram í máli Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttir, þingmanns Viðreisnar, undir liðnum störf þingsins þar sem hún fjallaði um þá staðreynd að fæðingartíðni íslenskra kvenna hefur aldrei verið lægri. Hefur hún dregist saman um það sem nemur að meðaltali hálfu barni á aðeins tíu árum.

Í nýársávarpi árið 2020 bað Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, landsmenn um að eignast fleiri börn. Hún sagði að hún þyrfti sennilega ekki að útskýra hvernig þetta væri gert né ætlaði hún að gefa beinar skipanir en henni var alvara því að Norðmönnum fjölgar ekki nægilega. Hvert er áhyggjuefni hennar? Jú, velferðarsamfélagið stendur ekki undir sér ef fólk hættir að eignast börn. Þeir sem eru á vinnumarkaði skapa tekjur og greiða skatta og styðja þannig við þá sem hafa skilað sínu verki á vinnumarkaði,“ sagði Þorbjörg.

Hún benti á að aldurspíramídi á hvolfi geti ekki staðið undir velferðinni en hér á landi fæðist of fá börn til að halda jafnvæginu til lengri tíma litið.

Við eigum þess vegna að hvetja frjósemisgyðjuna til dáða, hvetja hana til að leggjast undir feld. Um þetta ættu landsmenn að hugsa núna þegar þeir ferðast innan húss og innan lands í sumar, að gleyma þá ekki að ferðast kannski bara dálítið í svefnherberginu. Ömmum okkar og öfum tókst að fjölga sér um 200.000 á tíu árum og með það í huga að verja velferðina og efnahaginn með fleiri börnum ættum við líka að hlusta á Ernu, fyrir land og þjóð og fyrir ríkiskassann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert