Gasið frá gosinu fýkur til byggðar

Spá um gasmengun frá gosstöðvunum í Geldingadölum í dag.
Spá um gasmengun frá gosstöðvunum í Geldingadölum í dag.

Veðurstofa Íslands spáir því að í dag sé líklegt að gasmengunar verði vart á höfuðborgarsvæðinu. Brennisteinsdíoxíð úr eldgosinu í Geldingadölum mun að öllum líkindum svífa í átt að byggð miðað við veðurskilyrði.

Brennisteinsdíoxíð er skaðlegt mönnum í miklu magni en þó er ekki gert ráð fyrir að þess verði vart nema í litlu magni í dag. Þeir sem eru viðkvæmir, ung börn, astmasjúklingar og aðrir sem viðkvæmir eru í öndunarfærum, geta fundið einkenni vegna brennisteinsdíoxíðs í dag. Helgi Guðjónsson hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur segir við Morgunblaðið að slíkt ætti þó ekki að gerast, nema ef magn brennisteinsdíoxíðs fer yfir 350 míkrógrömm á rúmmetra. Fylgjast má með gasmælingum á höfuðborgarsvæðinu, svo að segja í rauntíma, á vef Umhverfisstofnunar.

„Ef það fer upp fyrir 350 míkrógrömm á rúmmetra þá gæti gerst að einhverjir sem viðkæmir eru finni fyrir einkennum. Það væri þá helst erting í öndunarfærum,“ segir Helgi í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert