Fiskideginum mikla aflýst annað árið í röð

Fiskidagurinn mikli á Dalvík hefur notið mikilla vinsælda.
Fiskidagurinn mikli á Dalvík hefur notið mikilla vinsælda. Ljósmynd/Bjarni Eiríksson

Fiskideginum mikla á Dalvík hefur verið aflýst í ár vegna kórónuveirunnar. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi í lok mars.

Fiskideginum var einnig aflýst í fyrra.

„Ákvörðunin er tekin að vel ígrunduðu máli. Við stefnum ótrauð á afmælishátíð í ágúst 2022. Fiskidagurinn mikli er þannig uppbyggður að við getum aldrei stjórnað fjölda þeirra gesta sem sækja okkur heim, við getum ekki skipt upp í hólf, ekki haft fjarlægðarreglur, og svo framvegis,“ segir í tilkynningu.

„Fiskidagurinn mikli sem er matarhátíð er ekki haldinn fyrr en grímunum hefur verið sleppt og ótakmarkaður gestafjöldi leyfður og að gestir geti knúsast áhyggjulaust að hætti Fiskidagsins mikla svo að fátt eitt sé nefnt. Það kostar mikla vinnu að skipuleggja svona stóra hátíð og óvissan er of mikil til þess að leggja af stað í þetta stóra verkefni. Við tökum enga áhættu og sýnum ábyrgð í verki, við teljum að það verði ekki kominn timi til að safna saman 30.000 manns eftir 3 mánuði,“ segir þar einnig.

Fólk er hvatt til að mæta á Fiskidaginn mikla í ágúst 2022 þegar haldið verður upp á 20 ára afmæli hátíðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert