Reykjavíkurborg skýlir blaðamanni á flótta

Samson Haileselassie Habte er fæddur árið 1985 í Erítreu og …
Samson Haileselassie Habte er fæddur árið 1985 í Erítreu og starfaði sem blaðamaður í Erítreu þangað til hann flúði landið árið 2013. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að gerast skjólborg fyrir Samson Haileselassie Habte sem er landflóttablaðamaður frá Erítreu. Er þetta fjórði einstaklingurinn sem Reykjavíkurborg tekur á móti í gegnum samtökin ICORN. 

ICORN eru samtök borga víðs vegar um heim sem bjóða listamönnum, rithöfundum, talsmönnum mannréttinda, blaðamönnum og tónlistarmönnum, sem eru í hættu í heimalandi sínu, skjól.

Handtekinn í heimalandinu og fékk slæma meðferð

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er mál hans rakið:

„Í janúar 2013 gerðu uppreisnarmenn misheppnaða tilraun til að taka yfir upplýsingaráðuneyti landsins Erítreu en í kjölfarið voru margir blaðamenn handteknir vegna gruns um að vera hliðhollir uppreisnarmönnunum.“

Er því lýst að Samson hafi verið í haldi lögreglu í fimm daga og hlotið afar slæma meðferð en eftir að hann var látinn laus ákvað hann að yfirgefa landið og flúði til Úganda þar sem hann hlaut alþjóðlega vernd árið 2016.

Lítið fjölmiðlafrelsi í landinu

Þrátt fyrir að hafa yfirgefið landið hafa honum ítrekað borist hótanir og í lok árs 2019 bauð Reykjavíkurborg Samson skjól til tveggja ára en hann kom til landsins um miðjan mars 2021.

Samson Haileselassie Habte er fæddur árið 1985 í Erítreu og starfaði sem blaðamaður í Erítreu þangað til að hann flúði landið árið 2013. Samkvæmt lista samtakanna Reporters Without Borders eða Fréttamenn án landamæra er Erítrea meðal þeirra þjóða heims þar sem fjölmiðlafrelsi er hvað minnst.

Í alþjóðlegum skýrslum hefur verið vakin athygli á gífurlegum mannréttindabrotum í landinu, en stjórnvöld í Erítreu stjórna alfarið hvaða upplýsingar komast í fjölmiðla og þeir sem birta ósamþykkt efni eiga á hættu að fá fangelsisdóm, að því er segir í tilkynningu frá borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert