Þróunarsjóður innflytjendamála styrkir alls 27 verkefni og er sérstök áhersla lögð á verkefni tengd börnum og ungmennum, atvinnu- og virkniúrræði ásamt rannsóknar- og þróunarverkefnum sem tengjast áhrifum Covid-19-heimsfaraldursins á innflytjendur á Íslandi.
Framlög til þróunarsjóðs innflytjendamála voru hækkuð verulega á þessu ári, en framlög úr sjóðnum voru aukin úr 10 milljónum króna í 25 milljónir árin 2018, 2019 og 2020 og í ár var samþykkt að leggja 20 milljóna króna viðbótarfjármagn til verkefna fyrir ungmenni af erlendum uppruna á aldrinum 16-19 ára sem eru hvorki í námi né vinnu. Um er að ræða hluta af framhaldsaðgerðum til að skapa viðspyrnu við áhrifum heimsfaraldurs kórónuveirunnar, að því er segir á vef félagsmálaráðuneytisins.
Alls voru veittir 20 styrkir vegna verkefna og rannsókna sem falla að áherslum sjóðsins í ár fyrir samtals rúmar 24 milljónir króna og skiptast svona:
Þá voru veittir sjö styrkir fyrir samtals 16,5 milljónir króna vegna rannsókna og verkefna sem snúa sérstaklega að ungmennum af erlendum uppruna sem eru á aldrinum 16-19 ára og eru hvorki í námi né vinnu. Tæpar 2,7 milljónir króna verða nýttar til þess að bæta tölfræðiupplýsingar um ungmenni af erlendum uppruna sem eru á aldrinum 16-19 ára og eru hvorki í námi né vinnu. Mikilvægt er að afla upplýsinga um hvaða áhrif efnahagsþrengingar vegna Covid-19 hafa haft á ungmenni á aldrinum 16-19 ára svo hægt sé að bregðast við með markvissum aðgerðum, segir enn fremur.
Háskólasetur Vestfjarða annast umsýslu með úthlutun styrkja og eftirfylgni samkvæmt samningi við félagsmálaráðuneytið.