Boðin bólusetning með efni AstraZeneca

Bóluefni AstraZeneca.
Bóluefni AstraZeneca. AFP

Einstaklingum á aldrinum 60–69 ára sem ekki hafa áhættuþætti sem auka hættu á segamyndun samkvæmt minnisblaði blóðmeinafræðinga til sóttvarnalæknis frá 9. apríl verður boðin bólusetning með bóluefni AstraZeneca.

Þetta kemur fram á vef embættis landlæknis.

Þar segir að þeir sem hafi aukna hættu á segamyndun í blóði eða blóðtappa að mati blóðmeinafræðinga og hafi verið bólusettir með bóluefni AstraZeneca verði boðaðir í mRNA-bóluefni, í flestum tilvikum bóluefni frá Pfizer, þegar 12 vikur eru liðnar frá fyrstu bólusetningunni.

Einstaklingar sem ekki þiggja þessa bólusetningu þegar boð berst geta fylgst með auglýsingum í opna daga í bólusetningar fyrir þennan aldurshóp eða haft samband við heilsugæslu á sínu svæði til að fá upplýsingar um hvaða daga bólusetning er í boði en fá ekki aftur boð úr miðlæga kerfinu.

Þeir sem fá boð í bólusetningu AstraZeneca og eru með áhættuþætti samkvæmt minnisblaðinu þurfa að hafa samband við heilsugæslu sem fer yfir sjúkrasögu og getur séð til þess að viðkomandi fái frekar mRNA-bóluefni ef tilefni er til.

Ekki er hægt að óska eftir öðru bóluefni á grundvelli persónulegra óska eða annarrar sjúkrasögu einstaklinga, hvorki hjá heilsugæslu né sóttvarnalækni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert