Fjögur smit greindust innanlands

Frá sýnatöku vegna kórónuveirunnar á Suðurlandsbaut.
Frá sýnatöku vegna kórónuveirunnar á Suðurlandsbaut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjögur kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru ekki í sóttkví. Þetta kemur fram á Covid.is. Þrjú virk smit greindust á landamærunum. 73 eru í einangrun sem er fækkun um sjö frá því í gær. Þrír eru núna á sjúkrahúsi en þeir voru tveir í gær. 

14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er núna 12,5. Á landamærunum er nýgengið 7,1, sem er hækkun um 0,6 á milli daga.

Tekin voru 1.170 sýni, þar af 688 hjá fólki með einkenni. Áfram eru 165 í sóttkví. 

59 manns eru núna í einangrun á höfuðborgarsvæðinu, sem er fækkun um fjóra á milli daga. Á Suðurlandi eru 6 í einangrun, sem er tveimur færra en í gær. Á Suðurnesjum eru 3 í einangrun, 2 á Vesturlandi og 1 á Vestfjörðum. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert