Hlér sendifulltrúi í Líbanon

Hlér Guðjónsson.
Hlér Guðjónsson. Ljósmynd/Aðsend

Hlér Guðjónsson, sendifulltrúi Rauða krossins, hefur hafið störf fyrir Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans í tengslum við Covid-19-verkefni í Beirút í Líbanon.

Hlér mun halda utan eftir þrjár vikur og starfa í Beirút næstu þrjá mánuði. Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans, í samstarfi við Alþjóðabankann, sinnir óháðu eftirliti með bólusetningu gegn Covid-19. Utanríkisráðuneytið fjármagnar stöðu Hlés að hluta í gegnum rammasamning ráðuneytisins við Rauða krossinn.

Stjórnvöld í Líbanon, með stuðningi Alþjóðabankans, hafa það að markmiði að 80% íbúa landsins verði bólusett fyrir árslok 2022, án tillits til stéttar eða stöðu. Eftirlit Rauða krossins er mikilvægur þáttur í þeim áætlunum en eftirlitið tekur meðal annars til birgða, flutnings og geymslu bóluefnis auk forgangsröðunar og skrásetningar á endurgjöf bólusettra, segir í tilkynningu.

„Það er heilmikið verkefni fram undan í baráttunni við Covid-19,“ segir Hlér í tilkynningunni. Hann býr yfir mikilli reynslu sem sendifulltrúi og hefur komið víða við í störfum sínum. Nú síðast starfaði Hlér í Dóminíska lýðveldinu í kjölfar fellibyljanna Maríu og Irmu en áður hefur hann meðal annars sinnt starfi upplýsingafulltrúa á vegum Alþjóða Rauða krossins í Kína og verkefnum sendifulltrúa í Síerra Leóne, Palestínu, Sómalíu og víðar.

„Við hjá Rauða krossinum leggjum sannarlega okkar lóð á vogarskálarnar í baráttunni við Covid-19, ekki aðeins á Íslandi heldur í gegnum alþjóðlegt net Rauða krossins á heimsvísu og ekki síst með áherslu á fátækustu löndin. Ef ekki næst að uppræta Covid-19 á heimsvísu er óvíst hvort við losnum við veiruna sem getur því miður kannski haldið áfram að stökkbreytast og herja á mannkynið allt. Þess vegna skiptir alþjóðleg samstaða máli. Það vitum við hjá Rauða krossinum og leggjum því okkar af mörkum þvert á landamæri til að styðja við fyrirætlanir sóttvarnayfirvalda á hverjum stað með dyggum stuðningi almennings og íslenskra stjórnvalda,“ bætir hann við í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert