MAST varar við neyslu á Husk

Vörurnar hafa verið fluttar til landsins og eru meðal annars …
Vörurnar hafa verið fluttar til landsins og eru meðal annars fáanlegar í í apótekum. Ljósmynd/MAST

Matvælastofnun varar við neyslu á Husk Psyllium Froskaller og Husk Psyllium Mavebalance trefjahylkjum og -dufti frá fyrirtækinu Orkla Care, en salmonella hefur greinst í vörunum og má rekja þrjú dauðsföll og fjölda sýkinga í Danmörku til neyslu varanna.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá MAST segir að stofnunin og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga vinni áfram að öflun upplýsinga um dreifingu til Íslands, en vörurnar hafa verið fluttar til landsins og eru meðal annars fáanlegar í apótekum. Innköllun stendur yfir á öllum lotum, en full dreifing liggur ekki fyrir á þessari stundu. Nánari upplýsingar verða birtar um leið og þær liggja fyrir.

Áður hafði verið greint frá því að innköllun næði ekki til Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert