Aukaupplýsingafundur almannavarna verður haldinn klukkan 11:00 í dag, en í gær greindust yfir 20 smit. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni hér fyrir neðan, en þar mun Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi ásamt Ölmu Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni.