Hertar aðgerðir hjá löndum með hærra nýgengi smita

Katrín Jakobsdóttir á fundinum í dag.
Katrín Jakobsdóttir á fundinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin hefur lagt til að aðgerðir á landamærunum vegna kórónuveirunnar verði hertar hjá þeim löndum þar sem nýgengi smita er meira en 1.000 á hverja 100 þúsund íbúa. Þar sem nýgengið er 750 á hverja 100 þúsund íbúa verður almenna reglan að ferðamenn fari í sóttvarnahús en hægt verður að sækja um undanþágu þess efnis.

Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar.

Dómsmálaráðherra mun einnig fá heimild til að banna ónauðsynlegar ferðir frá löndum þar sem nýgengi smita er umfram 1.000 á hverja 100 þúsund íbúa.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á fundinum.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á fundinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það eru mikil vonbrigði að afar fámennur hópur sem hefur ekki verið að virða gildandi reglur geti valdið eins mikilli röskun og raun ber vitni í samfélaginu. Við því verðum við nauðsynlega að bregðast,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á fundinum.

Holland, Frakkland, Pólland og Ungverjaland eru þau fjögur Evrópulönd sem eru með nýgengi smita yfir 1.000 á hverja 100 þúsund íbúa, sagði Katrín í samtali við RÚV.

1. júní ætlar ríkisstjórnin að innleiða svæðisbundið áhættumat sem byggir á litakóðunarkerfi ESB en er samt sjálfstætt mat innlendra sérfræðinga á stöðunni í löndunum í kringum okkur.

Þangað til verða hertar aðgerðir á landamærunum um leið og frumvörp þess efnis hafa verið samþykkt á Alþingi.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín sagði á fundinum að áhættumatið 1. júní miðist við aukna bólusetningu eldri hópa hér á landi. Það dragi úr alvarlegum áhrifum faraldursins með færri innlögnum á sjúkrahús eftir því sem fleiri eldri einstaklingar séu bólusettir. Hún nefndi að 1. maí verði allt fólk 70 ára og eldri komið með að minnsta kosti fyrri skammt bólusefnis hér á landi.

„Á meðan við erum að ná þessum markmiðum er mikilvægt að herða ráðstafanir á landamærum,“ sagði hún.

Stefna okkar frá upphafi hefur verið að vernda heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg áhrif af völdum kórónuveirufaraldursins, sagði hún einnig.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert