Kostur áfram með Cocoa Puffs

Bæði Cocoa Puffs og Lucky Charms verða áfram í sölu …
Bæði Cocoa Puffs og Lucky Charms verða áfram í sölu hjá Kosti. Ljósmynd/Aðsend

Bæði Cocoa Puffs- og Lucky Charms-morgunkorn verður áfram til sölu í Kosti. Þetta staðfestir Tómas Gerald Sul­len­ber­ger, framkvæmdastjóri Kosts, í samtali við mbl.is.

Hann segist hafa sett í sig í samband við heilbrigðiseftirlitið í Kópavogi sem staðfesti að engin reglugerð sem snerti innflutning á morgunkorninu hafi breyst.

Hann gerir því áfram ráð fyrir að bjóða upp á gamla góða Cocoa Puffsið sem seldist upp á örskömmum tíma hjá honum eftir að heildsalinn Nath­an & Ol­sen tilkynnti að fyrirtækið myndi ekki lengur bjóða upp á vörumerkin Cocoa Puffs og Lucky Charms frá General Mills. 

Þegar fréttirnar bárust voru til nokkrar birgðir af Lucky Charms hjá Kosti og því enn hægt að kaupa morgunkornið á síðu Kosts.

Tómas segir að miðað við sínar upplýsingar snúist málið um samstarf framleiðenda og heildsala en ekki reglugerðir eða leyfismál. Hans viðskiptasambönd séu önnur en Nath­an & Ol­sen og hann sjái fram á að geta áfram flutt inn morgunkorn sem framleitt er í Bandaríkjunum. 

Tómas segir að líklegt sé að um þrjár vikur séu í næstu sendingu af Cocoa Puffs.  

Tómas Gerald Sullenberger framkvæmdastjóri Kosts.
Tómas Gerald Sullenberger framkvæmdastjóri Kosts. mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert