Bjartsýn á að halda þjóðhátíð

Þjóðhátíðarnefnd er bjartsýn á að geta haldið þjóðhátíð í haust.
Þjóðhátíðarnefnd er bjartsýn á að geta haldið þjóðhátíð í haust. mbl.is/Ófeigur

„Ríkisstjórnin blés svolítið bjartsýni á þetta í gær. Við heyrðumst eitthvað í dag en ekkert að ráði,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson, varaformaður þjóðhátíðarnefndar. 

Á næstu vikum mun það skýrast betur hvort þjóðhátíð verði haldin í ágúst en áform ríkisstjórnarinnar um að aflétta takmörkunum innanlands fyrir 1. júlí hafa blásið von í hjörtu landsmanna um að hægt verði að halda hátíðina í Herjólfsdal síðla sumars. 

„Ef það verður leyfilegt að halda þjóðhátíð þá höldum við þjóðhátíð,“ sagði Jónas en þó hefur ekki verið hafist handa við skipulagningu hátíðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert