Gasmengun í átt að höfuðborgarsvæði

Eldgosið í Geldingadölum.
Eldgosið í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Spáð er suðvestlægum áttum í dag og berst gasmengun því í átt að höfuðborgarsvæðinu frá gossvæðinu. Búast má við hækkuðum gildum á SO2 á þeim slóðum. Síðdegis verður vindur orðinn sunnanstæðari og hallar sér í suðaustanátt með kvöldinu.

Engir viðbragðsaðilar til hádegis

Engir viðbragðsaðilar verða á gossvæðinu til hádegis í dag til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum.  

Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir hádegi eru beðnir um að hafa þetta í huga, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum.

„Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Þá hefur gönguleið reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Hættusvæði við gosstöðvarnar hefur verið merkt inn á kort sem hægt er að nálgast á Facebook-síðu lögreglu og á vedur.is, heimasíðu Veðurstofu Íslands,“ segir í tilkynningu.

„Svæðið er ekki fyrir lítil börn, þau eru viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eldri eru og því berskjölduð fyrir skaðlegum lofttegundum. Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm og öðrum útivistarfatnaði.“

Nánari veðurspá fyrir gosstöðvarnar og líkleg gasdreifing:

„Sunnan 5-10 m/s og skýjað í dag og líkur á dálítilli vætu af og til. Hiti 2 til 6 stig. Vindur er suðvestlægari nokkur hundruð metra yfir jörð, og gasið leggur því líklega yfir höfuðborgarsvæðið fyrri hluta dags. Einnig eru líkur á að gas safnist fyrir í grennd við gosstöðvarnar í þetta hægum vindi.

Hægari sunnan- og suðaustanátt í kvöld og gasið ætti þá að leggja yfir Vatnsleysuströnd. Auk þess aukast líkurnar á gassöfnun við gosstöðvarnar.

Suðaustan 10-15 m/s og rigning eða súld og takmarkað skyggni á morgun. Gas mun leggja yfir byggð á norðvestanverðum Reykjanesskaga, en mengun ætti ekki að verða mikil á gosstöðvunum.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert