Norðmenn lána Íslendingum bóluefni

Bóluefni AstraZeneca.
Bóluefni AstraZeneca. AFP

Íslendingar munu fá að láni 16.000 skammta af AstraZeneca-bóluefni frá Noregi samkvæmt samkomulagi ríkjanna tveggja. Byrjað verður að bólusetja með því í næstu viku hér á landi að því er fram kemur á vef heilbrigðisráðuneytisins. 

„Samkvæmt samkomulagi Íslands og Noregs munu Íslendingar fá að láni 16.000 skammta af AstraZeneca-bóluefni frá Noregi. Gert er ráð fyrir að bóluefnið muni berast til landsins um helgina og fari í dreifingu í næstu viku.

Afhendingaráætlun og bólusetningardagatal verða uppfærð til samræmis eftir helgi. Sóttvarnalæknir hefur gefið þau fyrirmæli að nýta eigi bóluefnið til einstaklinga yfir 60 ára. Ljóst er að þessi samningur mun styrkja enn frekar bólusetningaráætlun Íslands,“ segir á vef ráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert