Sumardagurinn fyrsti mildur og vætusamur

Útlit er fyrir mildan en vætusaman sumardaginn fyrsta á morgun.
Útlit er fyrir mildan en vætusaman sumardaginn fyrsta á morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Suðaustanátt er spáð á morgun, 5-13 metrar á sekúndu og væta víða á landinu sunnan- og vestanverðu en ætti að stytta upp í norðausturfjórðungnum,“ segir Teitur Arason, veðurfræðingur á vakt hjá Veðurstofu Íslands, um það hvernig viðra mun á landsmenn á morgun, sumardaginn fyrsta.

„Mildur og vætusamur heilt á litið,“ bætir hann við.

Næturfrost gæti orðið í norðausturfjórðungnum en einnig er frost á hálendinu og upp til fjalla. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um meiningu þess að vetur og sumar frjósi saman. Trausti Jónsson veðurfræðingur rakti í bloggfærslu árið 2013 hvernig hjátrúin um frost aðfaranótt sumardagsins fyrsta væri misskilin og kallaði núverandi og útbreidda túlkun hennar dellu:

„Eitt af því sem sífellt er verið að tala um í kringum sumardaginn fyrsta er hvort nú frjósi saman sumar og vetur. Er frost þá tengt góðu sumri. Alloft er gott vit í gömlum veðurspádómum – en þessi verður að teljast fullkomin della eins og nú er til hans vitnað. Einföld athugun sem nær til síðustu 64 ára sýnir að vetur og sumar frusu saman á landinu 56 sinnum af þessum 64. Voru öll þau sumur góð?

Það er sérlega eftirtektarvert að á sumardaginn fyrsta 1974 var lægsta lágmark næturinnar á landinu öllu 3,5 stig. Hvergi fraus í byggðum. Þetta var eins og sumir muna enn eitt hagstæðasta sumar á Suðurlandi um langt árabil – og ekki taldist það sérlega óhagstætt nyrðra. Tveimur árum síðar, 1976, var líka frostlaust um land allt á aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Það var óminnilega hagstætt sumar um landið norðan- og austanvert – en mikið rigningasumar syðra.

En getur þetta þá ekki átt við einstaka staði á landinu? Nei, varla, koma þá aldrei hagstæð sumur í hlýjustu byggðum landsins? Nefna má að gaddfrost var í Reykjavík aðfaranótt sumardagsins fyrsta 1983 - á undan versta sumri sem um getur þar um slóðir.

En sem skemmtiatriði? Má ekki hafa gaman af þessu? Jú, auðvitað má það – en þá væri best að fara eftir fornum leikreglum. Í gömlu reglunni er talað um góða málnytu frjósi sumar og vetur saman. Það er að segja að meiri sumarmjólkur sé að vænta úr kúm og ám en annars. Ekkert er sagt um gæði sumars samkvæmt kröfu nútímamanna. Sól og þurrkur eru nú á tímum talin sérlega hagstæð að sumarlagi. Í því veðurlagi er hins vegar oft kyrkingur í gróðri og gras lélegt – heldur til baga fyrir mjólkurframleiðslu. Fyrr á árum höfðu menn ekki heldur hitamæla – heldur átti að leggja út grunnan disk eða trog með vatni. Væri á því þykkt skæni eða það heilfrosið að morgni var talað um að sumar og vetur hefðu frosið saman – annars ekki.

Þeir sem eru smámunasamir segja að ísskánin sé merki um þykkt rjóma á mjólkurtrogum á komandi sumri.

Upplýsingar um málnytu og fitumagn mjólkur liggja ekki fyrir í veðurmælingum þannig að áhugamenn hafa enn rými til varnar fyrir regluna. Ekki er endilega víst að ritstjórinn hafi hana rétt eftir í þessum pistli. Gaman væri ef uppruninn fyndist og sömuleiðis væri skemmtilegt að vita hvernig var til hennar vitnað fyrir 1950 – nú eða þá á 18. eða 19. öld?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert