Upplýsingafundur klukkan 11

Kamilla Sigríður Jósefsdóttir smitsjúkdómalæknir verður á fundi dagsins.
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir smitsjúkdómalæknir verður á fundi dagsins. Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 11:00.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fer yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi ásamt Kamillu Sigríði Jósefsdóttur smitsjúkdómalækni sem mun fara yfir skipulag og framkvæmd bólusetningar á Íslandi. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn stýrir fundinum að venju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert