Gossvæðið hættulegt

Lögreglan ræður fólki frá því að taka ung börn og …
Lögreglan ræður fólki frá því að taka ung börn og hunda með sér. Ljósmynd/Ólafur Þórisson

Frá miðnætti til hádegis eru engir viðbragðsaðilar á gosstöðvunum á Reykjanesskaga til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar segir að gossvæðið sé hættulegt, ekki síst vegna lélegra loftgæða, og það sé ekki fyrir ung börn. 

Í tilkynningunni er sömuleiðis vakin athygli á því að bannað sé að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skuli bílum á skipulögðum stæðum á grasflötum við veginn en aðkoma að bílastæðum er bæði úr austri og vestri.

„Áætla má að gangan taki 3-4 klst. fram og til baka fyrir meðalvant göngufólk. Gönguleiðin er stikuð og greinileg. Hafið síma fullhlaðna. Verið með höfuðljós/vasaljós og auka rafhlöður í kvöldgöngu,“ segir í tilkynningunni.

Gasmengun getur alltaf farið yfir hættumörk 

Þar er börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi.

„Einnig getur verið yfirborðsmengun í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Yfirborðsmengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina. Vegna loftmengunar er ekki ráðlagt að dvelja lengi við gosstöðvarnar,“ segir í tilkynningunni. 

Gasmengun berst til norðvesturs í dag og gæti orðið vart við hana í byggð frá Vogum, í Reykjanesbæ og allt til Hafna. Í fyrrnefndri tilkynningu kemur eftirfarandi fram um gasmengun:

  • Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá almannavörnum.

  • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.

  • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.

  • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni.

  • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru berskjaldaðri fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert