Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, leiðir framboðslista Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Í öðru sæti er Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum.
Viðreisn tilkynnti þetta rétt í þessu en um er að ræða fyrsta framboðslistann sem Viðreisn kynnir.
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg, skipar þriðja sæti listans og Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, er í fjórða sæti.
Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.
Frambjóðendurnir 20 sem eru á listanum eru eftirfarandi:
Framboðslisti Viðreisnar í Suðurkjördæmi:
1. Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Reykjanesbær.
2. Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum. Hveragerði.
3. Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg. Selfoss.
4. Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Reykjanesbær.
5. Axel Sigurðsson, matvæla- og búfræðingur. Selfoss.
6. Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir lögmaður. Hveragerði.
7. Arnar Páll Guðmundsson viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.
8. Kristina Elísabet Andrésdóttir viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.
9. Bjarki Eiríksson, sölu- og þjónusturáðgjafi. Hella.
10. Jasmina Crnac stjórnmálafræðingur. Reykjanesbær.
11. Jóhann Karl Ásgeirsson háskólanemi. Hveragerði.
12. Kristjana H. Thorarensen geðtengslafræðingur. Þorlákshöfn.
13. Halldór Rósmundur Guðjónsson lögfræðingur. Reykjanesbær.
14. Justyna Wroblewska, deildarstjóri í leikskóla og nemi í mannauðsstjórnun. Reykjanesbær.
15. Heimir Hafsteinsson, trésmíðameistari og aðstoðarmaður byggingafulltrúa í Rangárþingi ytra. Hella.
16. Kolbrún M. Haukdal Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur. Vestmannaeyjar.
17. Alfreð Alfreðsson leiðsögumaður. Vestmannaeyjar.
18. Guðbjörg Ingimundardóttir sérkennari. Suðurnesjabær.
19. Hannes Sigurðsson framkvæmdastjóri. Þorlákshöfn.
20. Ingunn Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur. Selfoss.