Segir að seinka þurfi áætlun stjórnvalda

Aðstoðarprófessor í líftölfræði segir að stjórnvöld séu e.t.v. of snemma …
Aðstoðarprófessor í líftölfræði segir að stjórnvöld séu e.t.v. of snemma í því. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvær vikur tekur að fá vörn gegn kórónuveirunni eftir fyrsta skammt bóluefnis og því þarf að hliðra áætlun stjórnvalda um tilslakanir innanlands í samræmi við það, að sögn Jóhönnu Jakobsdóttur, lektors í líftölfræði við Háskóla Íslands.

Þetta segir hún á twitter-síðu sinni þar sem hún segir einnig að vegna þess að bólusett er eftir aldursröð hér á landi, verði hjarðónæsmiþröskuldi ekki náð þegar 65% landsmanna hafa fengið einn skammt bóluefna. Það sé vegna þess að hjarðónæmi verður að hluta til ekki jafndreift og þarf til þess að hjarðónæmi fáist.

Litakóðunarkerfi henta ekki í núverandi mynd

Jóhanna segir einnig að ekki hafi enn verið tekið tillit til barna í áætlun um bólusetningar, þegar þau eru samþykkt, en bætir við að líklegt sé að bóluefni Pfizer verði samþykkt fyrir börn á aldrinum 12-15 ára í sumar.

Þá segir hún að litakóðunarkerfi Sóttvarnastofnunar Evrópu gangi skemur en Ísland ráði við, sérstaklega hvað varðar nýgengi í löndum sem merkt eru græn á korti stofnunarinnar. Að auki segir hún að nýtilkomin skilgreining íslenskra stjórnvalda á vínrauðum svæðum, hááhættusvæðum, sé of ströng og að miða þurfi við lægra nýgengi.

Tekur undir orð Jóhönnu

Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði við Háksóla Íslands og deildarstjóri smit- og bólgusjúkdóma hjá Íslenskri erfðagreiningu, vakti athygli á orðum Jöhönnu á facebook-síðu sinni og tekur undir það sem hún segir.

Ingileif segir að einn skammtur bóluefnis AstraZeneca hafi veitt 64% vernd gegn Covid-19 þremur vikum eftir bólusetningu í rannsókn sem gerð var á 12.600 þátttakendum. Þremur vikum til þremur mánuðum eftir bólusetningu hafi einn skammtur sama bóluefnis svo veitt 76% vernd í rannsókn með 18 þúsund þátttakendurm. Vegna þessa segir Ingileif að stjórnvöld verði að bíða í um mánuð í viðbót með fyrirætlanir sínar breytt fyrirkomulag á landamærum Íslands.

Skjáskot/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert