Tap Ríkisútvarpsins nam 209 milljónum

RÚV. Tap í fyrra nam 209 milljónum.
RÚV. Tap í fyrra nam 209 milljónum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisútvarpið tapaði 209 milljónum króna eftir skatta á árinu 2020 og er það í fyrsta sinn síðan árið 2014 sem stofnunin er rekin með tapi. Heildareignir í árslok námu 8,34 milljörðum króna, eigið fé 1,9 milljjörðum króna og eiginfjárhlutfall var 23,1%.

Auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins lækkuðu milli ára um tæplega 200 milljónir og segir í fréttatilkynningu að raunlækkun sé því töluverð. Kórónuveiran hafi gert reksturinn erfiðari. Þá segir að möguleikar Ríkisútvarpsins til að afla auglýsingatekna hafi verið takmarkaðir á undanförnum árum og að auglýsingamarkaðurinn sé almennt að breytast.

„Ríkisútvarpið á ríkt erindi við þjóðina og sinnir á hverjum degi mikilvægu hlutverki í þágu landsmanna allra. Þetta var undirstrikað með skýrum hætti á því fordæmalausa ári 2020,“ sagði Stefán Eiríksson útvarpsstjóri á aðalfundi Ríkisútvarpsins sem fram fór í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert