Aðalmeðferð vegna brunans á Bræðraborgarstíg

Eldsvoðinn á Bræðraborgarstíg í júní í fyrra.
Eldsvoðinn á Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aðalmeðferð hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrramálið í máli karlmanns á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir að hafa kveikt í húsi á Bræðraborgarstíg síðasta sumar með þeim afleiðingum að þrír létust.

Teknir hafa verið frá fjórir dagar fyrir aðalmeðferðina í héraðsdómi, sem sýnir vel umfang málsins.

Fyrirtaka í málinu var um miðjan síðasta mánuð og þar hafnaði dómari kröfu verjanda mannsins um að dómþing færi fram fyrir luktum dyrum. Ákæruvaldið hyggst kalla 35 vitni fyrir dóminn.

Maðurinn neitaði sök um manndráp og íkveikju við þingfestingu málsins síðasta haust. 

Þrír geðlæknar hafa metið manninn ósakhæfan og staðfestu þeir þar með fyrra mat geðlækna.

Eldsvoðinn á Bræðraborgarstíg í júní í fyrra.
Eldsvoðinn á Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

13 manns voru í húsinu 

Í ákær­unni er maðurinn sagður hafa kveikt eld á gólfi í her­bergi sínu á ann­arri hæð, á tveim­ur stöðum á gólfi í sam­eig­in­legu rými á sömu hæð og und­ir stiga sem sem lá upp á þriðju hæð húss­ins.

Í ákær­unni kem­ur jafn­framt fram að þegar hann hafi kveikt eld­inn hafi 13 manns verið í hús­inu og var húsið orðið nær al­elda þegar slökkvistarf hófst.

Þrjú lét­ust í brun­an­um, 24 ára kona, 21 árs karl­maður og 26 ára kona. Kem­ur fram í ákær­unni að þau tvö fyrr­nefndu hafi lát­ist af völd­um koloxíðeitr­un­ar við inn­önd­un á reyk, en hin kon­an lát­ist þegar hún féll niður af þriðju hæð þegar hún reyndi að flýja eld­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert