16 smit innanlands

Landspítali/Þorkell Þorkelsson

16 einstaklingar greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 13 voru í sóttkví við greiningu en þrír utan sóttkvíar. Níu greindust við einkennasýnatöku en sex við sóttkvíarskimun. Tveir bíða niðurstöðu mótefnamælingar á landamærunum. 

Alls var 1.891 einstaklingur skimaður innanlands í gær og 419 á landamærunum.

Nú eru 177 í einangrun og 443 eru í sóttkví. Í skimunarsóttkví eru 917. Fjórir eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19. 

37 smit meðal barna á leikskólaaldri

Alls eru 55 börn í ein­angr­un með kór­ónu­veiruna á Íslandi í dag og eru smitin flest meðal barna á leikskólaaldri. Eitt barn á fyrsta ári er með smit, 37 smit eru meðal barna á aldr­in­um 1-5 ára, 13 smit eru á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og fjögur í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. 

Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 25 smit, 31 smit er í ald­urs­hópn­um 30-39 ára, 33 smit eru í ald­urs­hópn­um 40-49 ára, 20 smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára, 11 meðal fólks á sjö­tugs­aldri og tveir á átt­ræðis­aldri eru með Covid-19.  

Nýgengi innanlands á hverja 100 þúsund íbúa síðustu 14 daga er nú 43,4 og á landamærunum 3,8.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert