Sigríður Dögg nýr formaður BÍ

Sigríður Dögg Auðunsdóttir,
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Ljósmynd/Aðsend

Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigraði í kjöri til formanns Blaðamannafélags Íslands. Sigríður fékk 171 atkvæði eða 54,6% atkvæða.

Heimir Már Pétursson fékk 130 atkvæði eða 41,5% atkvæða. Auðir seðlar voru 12 eða 3,8% atkvæða. Alls voru 553 á kjörskrá og atkvæði greiddu 313 þannig að kjörsókn var 56,6%.

Þetta kemur fram á vef BÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert