Diljá Mist sækist eftir þriðja sætinu

Diljá Mist Einarsdóttir.
Diljá Mist Einarsdóttir.

Diljá Mist Einarsdóttir, hæstaréttarlögmaður og aðstoðarmaður utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hef­ur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti í próf­kjöri sjálf­stæðismanna í Reykja­vík fyr­ir kom­andi alþingis­kosn­ing­ar sem fram fer þann 4. og 5. júní nk. Diljá er gift Ró­berti Bene­dikt Ró­berts­syni fjár­mála­stjóra og eiga þau tvö börn.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Diljá Mist Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 21. desember 1987. Hún öðlaðist málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti í desember 2016, yngst kvenna á Íslandi. Diljá er með meist­ara­próf í lög­fræði frá Háskóla Íslands en hún starfaði áður sem fulltrúi á lögmannsstofunni Lög­máli. Auk meist­ara­prófs í lög­fræði er Diljá með LL.M.-gráðu í auð­linda­rétti og alþjóð­legum umhverf­is­rétti frá Háskóla Íslands. Þá er Diljá stúd­ent frá Verzlunarskóla Íslands.

„Ég tel mikilvægast að við horfum á stóru myndina – forræðishyggja og vaxandi afskipti ríkisins af venjulegu fólki er mikið áhyggjuefni. Í frjálsu samfélagi er hagsmunum okkar best borgið, þar nýtur hvert og eitt okkar sín best – fjölbreytileiki mannlífsins er okkar helsti styrkleiki. Við höfum staðið okkur best þegar við treystum á okkur sjálf. Nú eigum við að horfa óhrædd og björtum og augum til framtíðar,” er haft eftir Diljá í tilkynningu.

Ætlar að taka sér leyfi

Diljá hefur aðstoðað Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, frá árinu 2018. Störf Diljár innan ráðuneytisins hafa m.a. snúið að þróunarsamvinnu sem er orðinn veigamikill hluti af utanríkismálum Íslands og leiddi hún starfshóp um innleiðingu mannréttindamiðaðrar þróunarsamvinnu í tvíhliða samstarfi. 

Diljá hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún er varaborgarfulltrúi flokksins í Reykjavík og hefur hún átt sæti í endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar. Hún tók sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir þingkosningarnar árið 2009. Þá var Diljá annar vara­for­maður Sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna 2007-2009 og vara­for­maður Heimdallar 2009-2010 og sat í stjórn Varð­ar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík 2016-17, svo dæmi séu tekin.

Diljá mun taka sér leyfi frá störfum sem aðstoðarmaður frá 17. maí til þess að vinna að framboði sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert