Annar stærri skjálfti vestur af Kleifarvatni

Hverir suður af Kleifarvatni. Mynd úr safni.
Hverir suður af Kleifarvatni. Mynd úr safni. mbl.is/RAX

Jarðskjálfti, 3,2 að stærð, reið yfir klukkan 15.49 síðdegis og átti upptök sín um 2,5 km vestur af Kleifarvatni og 4 km norður af Krýsuvík.

Skjálftinn varð á sömu slóðum og þeir sem riðu yfir á fjórða tímanum í nótt. Ein­ar Hjör­leifs­son, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands, sagði í samtali við mbl.is í morgun að þeir væru sennilega svokallaðir gikkskjálftar.

Hið sama gildir því líklegast um þennan sem nú varð. Fleiri minni skjálftar hafa mælst á svæðinu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert