FA segir verðbólgu í aðsigi

Hækkun útboðsgjaldsins er á bilinu 102-185 krónur fyrir nautakjöt auk …
Hækkun útboðsgjaldsins er á bilinu 102-185 krónur fyrir nautakjöt auk annarra afurða. mbl.is/Golli

Útboðsgjald, sem innflytjendur þurfa að greiða fyrir að fá að flytja vörur inn án tolla, hækkar í ýmsum tilfellum frá síðasta útboði í janúar. Í öðrum tilvikum er um lækkun að ræða að því er fram kemur á vef Félags atvinnurekenda.

Í ljósi þessa er haft eftir Ólafi Stephensen framkvæmdastjóra FA á heimasíðu félagsins: 

„Þessar hækkanir á kostnaði innflytjenda við að flytja inn vöruna fara að sjálfsögðu út í matvöruverð og stuðla að hækkandi verðbólgu.“

Lýsir félagið því að sú breyting sem Alþingi gerði á búvörulögum í desember til að vernda innlenda búvöruframleiðslu tímabundið í ljósi faraldursins, leiði í öllum tilvikum til hækkunar á útboðsgjaldi frá júní síðastliðnum en þá var tollkvótum úthlutað í fyrsta sinn með svokölluðu jafnvægisútboði.

Hækkun útboðsgjaldsins er á bilinu 102-185 krónur fyrir nautakjöt, alifuglakjöt, þurrkaðar og reyktar skinkur, pylsur og eldaða kjötvöru. 

Þróun útboðsgjaldsins fyrir mismunandi vörur.
Þróun útboðsgjaldsins fyrir mismunandi vörur. Grafík/Félag atvinnurekenda

Gagnrýna ráðuneytið fyrir að hafa birt úthlutun seint 

Eins og FA hefur ítrekað bent á, skýtur það mjög skökku við að stjórnvöld skuli þannig meðvitað beita sér fyrir hækkun matvöruverðs. Á sama tíma og verðbólgudraugurinn nær sér á strik og mesta verðbólga í átta ár mælist hafa stjórnvöld gripið til þess ráðs að stuðla að verðhækkunum á innfluttum mat til að verja innlenda framleiðendur búvöru. Þessi lagabreyting ver aðallega kjötafurðastöðvar og Mjólkursamsöluna fyrir samkeppni, en gerir ekkert til að bæta hag bænda. Hún bitnar hins vegar hart á almennum neytendum.“

FA gerir þá alvarlegar athugasemdir við að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skuli hafa birt úthlutun tollkvóta daginn áður en innflutningsheimildirnar taka gildi en núverandi úthlutun gildir frá 1. maí til 15. september.

FA hefur með bréfi til ráðuneytisins í dag ítrekað ábendingar sínar frá því í byrjun april, en þá vakti félagið athygli á að í þetta stefndi vegna þess hve auglýsing um tollkvóta birtist seint.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert