Nýjasta þyrlan flýgur frá Noregi til Íslands

Myndin var tekin við brottför þyrlunnar frá Noregi í gær.
Myndin var tekin við brottför þyrlunnar frá Noregi í gær. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Nýjasta þyrlan í flugflota Landhelgisgæslunnar, sem hefur fengið einkennisstafina TF-GNA, lagði af stað frá Stafangri í Noregi í gær áleiðis til Íslands. Fyrsti viðkomustaður í ferjufluginu voru Hjaltlandseyjar en þaðan var flogið til Færeyja.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Gæslunnar.

Fram kemur, að TF-GNA hafi tekið á loft frá Þórshöfn í Færeyjum áleiðis til Íslands nú á öðrum tímanum og muni eiga stutta viðkomu á Egilsstöðum áður en hún lendir á Reykjavíkurflugvelli um kvöldmatarleytið.

TF-GNA er þriðja leiguþyrla Landhelgisgæslunnar af gerðinni Airbus Super Puma EC225 en hinar tvær, TF-GRO og TF-EIR, hafa reynst afar vel frá því þær bættust í flotann fyrir tveimur árum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert