Heimild vegna séreignasparnaðar verði framlengd

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á Alþingi.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á Alþingi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heimild til að greiða séreignarsparnað skattfrjálst inn á höfuðstól íbúðalána verður framlengd fram á mitt ár 2023 ef frumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, þess efnis verður samþykkt á Alþingi.

Ráðherra mælti fyrir frumvarpi um framlengingu úrræðisins á Alþingi í dag, en gildandi heimild rennur að óbreyttu út í sumar.

Úrræðið hefur verið mjög vel nýtt frá því að bráðabirgðaákvæði um málið var fyrst sett í lög um mitt ár 2014, að því er segir í tilkynningu. Að meðaltali um hafa um 22 þúsund manns fengið greiðslur inn á höfuðstól íbúðalána á mánuði í þau sjö ár sem úrræðið hefur verið í boði.

Alls hafa um 60 þúsund manns greitt séreign skattfrjálst inn á lán sín, en síðustu árin hafa alls um 160 milljarðar króna verið greiddir inn á lán einstaklinga með stuðningi stjórnvalda.

Árið 2015 var höfuðstóll verðtryggðra íbúðalána leiðréttur með 80 milljarða króna framlagi ríkissjóðs og við þetta bætast skattfrjálsar inngreiðslur séreignarsparnaðar á íbúðalán.

Gert er ráð fyrir að allt að 24 milljarðar króna verði greiddir út til viðbótar inn á höfuðstól íbúðalána næstu tvö árin, hljóti frumvarpið brautargengi á Alþingi. Því má gera ráð fyrir að upphæðin verði komin í allt að 184 milljarða króna þegar framlenging bráðabirgðaákvæðisins fellur úr gildi um mitt ár 2023.

„Úrræðið hefur gefist vel, reynst mikil kjarabót fyrir þúsundir Íslendinga og stuðlað að hraðari eignamyndun einstaklinga og fjölskyldna á húsnæðismarkaði. Með tilliti til þessa taldi ég rétt að koma til móts við óskir fjölda einstaklinga og hagsmunasamtaka um framlengingu þess, og ég treysti á að málið fái skjóta afgreiðslu á Alþingi,” segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert