Þriðja þyrlan komin til landsins

TF-GNA í Stafangri fyrir brottför.
TF-GNA í Stafangri fyrir brottför. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

TF-GNA, nýjasta björgunarþyrla þjóðarinnar, lenti á Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum í gærkvöld.

Ferjuflugið frá Noregi hófst í Stafangri í fyrradag en millilent var á Hjaltlandseyjum, Færeyjum og Egilsstöðum áður en Gná komst loks í heimahöfn í Reykjavík.

Vélin er þriðja leiguþyrlan af gerðinni Airbus Super Puma EC225 en hinar sem fyrir eru, TF-EIR og TF-GRO, hafa reynst afar vel að því er segir í færslu Landhelgisgæslunnar á Facebook í gærkvöldi. „Landhelgisgæslan er þar með komin með þrjár tiltækar björgunarþyrlur á nýjan leik. Óhætt er að fullyrða að flugfloti Landhelgisgæslunnar hafi aldrei verið fullkomnari en nú,“ segir á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert