Fyrstu rúmin sem sjúkrahúsið fær

Rúmin koma frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Rúmin koma frá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ljósmynd/Aðsend

Nýverið afhenti Aurora velgerðasjóður 43 sjúkrarúm til sjúkrahúsa í Síerra Leóne. Sjúkrahús Akureyrar gaf rúmin og lagði Samskip til flutninginn á þeim. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Undir lok árs 2019 hafði Sjúkrahús Akureyrar samband við framkvæmdastjóra Auroru velgerðasjóðs þar sem stofnunin var að skipta út rúmlega 40 sjúkrarúmum. Spurt var hvort hægt væri að koma þeim í góða notkun í Síerra Leóne en tveimur árum áður hafði Aurora tekið við 20 rúmum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri og í samstarfi við Samskip flutt þau til Síerra Leóne og gefið á þrjá spítala. 

„Aurora leitaði því á ný eftir samstarfi við SAMSKIP. Fjörtíu og þremur sjúkrarúmum var komið fyrir í gám á Akureyri snemma árið 2020. Gámurinn náði þó ekki að fara frá Rotterdam eftir að Covid-19 braust út í heiminum. Síerra Leóne lokaði landamærum sínum við upphaf faraldursins og opnaði þau ekki aftur fyrr en í ágúst. Var þá strax hafist handa við að skoða hentugan tíma fyrir flutning á rúmunum. Það var þó ekki fyrr en í febrúar 2021 sem gámurinn komst á leiðarenda. Samskip flutti rúmin á sinn kostnað frá Akureyri til höfuðborgarinnar Freetown, en Aurora sá um að leysa gáminn úr tolli, greiða allan annan kostnað í kringum flutninginn, og dreifa þeim á sjúkrastofnanir í landinu,“ segir í tilkynningu.

Rúmin eiga eftir að koma að góðum notum á sjúkrahúsum …
Rúmin eiga eftir að koma að góðum notum á sjúkrahúsum í Síerra Leóne. Ljósmynd/Aðsend

Stærstur hluti rúmanna fór til Princess Christain Maternity Hospital (PCMH), sem er helsta fæðingarsjúkrahúsið í Sierra Leone, staðsett í austurhluta höfuðborgarinnar. Þá fóru fáein rúm einnig til Brama Community Hospital, en sú sjúkrastofnun er töluvert fyrir utan Freetown. Aurora hefur unnið náið með samfélaginu í Brama Town, ekki síst vefurum þorpsins sem vinna með bambusþræði. Í þorpinu er einungis einn starfandi læknir og nokkrir hjúkrunarfræðingar. Áður hafði sjúkrahúsið engin rúm heldur voru þar einungis nokkrar dýnur og einfaldir beddar. Starfsfólkið var því afar þakklátt að fá nothæf sjúkrarúm til að sinna sjúklingum sínum í.  

Nokkur rúm fóru einnig til UBC Mattru Hospital í Mattru Jong, sem er í suðurhluta Sierra Leone og þjónar gríðarlega stóru svæði. Héraðið varð virkilega illa úti þegar borgarastríðið í landinu stóð sem hæst og var sjúkrahúsið þá jafnað við jörðu. Hafist var handa við endurbyggingu strax í kjölfar stríðsloka árið 2001. Inniviði í sjúkrahúsið vantar þó enn sárlega og braust því út mikill fögnuður þegar rúmin bárust. 

Að lokum fóru rúm einnig til Allen Town Community Hospital, sem er staðsettur í austasta hluta Freetown. Þar er rekin mjög lítil sjúkrastofnun af samfélaginu, með nokkra hjúkrunarfræðinga. Læknar koma í heimsókn öðru hvoru. Þetta er þó helsta fæðingardeild svæðisins og eina stofnunin sem sinnir mæðravernd. Voru rúmin ákaflega kærkomin enda búnaður sjúkrastofnunarinnar ákaflega takmarkaður. 

Aurora velgerðasjóður hefur starfrækt þróunarsamvinnuverkefni í Síerra Leóne undanfarin 13 ár. Samhliða eigin verkefnum hefur sjóðurinn átt í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki sem hafa viljað styðja við samfélagsleg verkefni í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert