Víðáttumikil hæð yfir Grænlandi

Vegna hættu á gróðureldum er mikilvægt að fara mjög varlega …
Vegna hættu á gróðureldum er mikilvægt að fara mjög varlega með eld. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það breytist lítið hjá okkur veðrið þessa dagana og í raun er svipað útlit a.m.k. fram í byrjun næstu viku. Víðáttumikil hæð situr yfir Grænlandi og lægðirnar og rigningin fer til Bretlandseyja og Skandinavíu. Gróður á Íslandi fer hins vegar hægt af stað vegna þurrks og kulda í norðanáttinni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Í dag og á morgun er útlit fyrir norðangolu eða -kalda en austlægari vindur syðst á landinu. Bjartviðri vestanlands en annars skýjað að mestu og sums staðar dálítil él eða skúrir. Hiti nær í tæp 10 stig þegar best lætur í sólskini á Suðvesturlandi, en heilt yfir verður að teljast fremur kalt á landinu og frost er víða að næturlagi.

Gróður er nú mjög þurr sunnan- og vestanlands og ekki útlit fyrir vætu næstu daga. Vegna hættu á gróðureldum er því mikilvægt að fara mjög varlega með eld,“ segir í viðvörun á vef Veðurstofunnar. 

Veðurhorfur í dag og næstu daga

Norðlæg átt 3-10 m/s. Bjartviðri vestanlands, en annars skýjað að mestu og sums staðar dálítil él eða skúrir. Svipað veður á morgun. Hiti 0 til 9 stig yfir daginn, mildast á Suðvesturlandi. Næturfrost um allt land.

Á föstudag:
Norðaustan og austan 3-10 m/s. Bjartviðri vestanlands, en annars skýjað að mestu og sums staðar dálítil él. Hiti 0 til 9 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Næturfrost um allt land.

Á laugardag, sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Norðan og norðaustan 3-10 m/s. Skýjað og lítils háttar él á Norður- og Austurlandi, hiti 0 til 3 stig. Léttskýjað að mestu sunnan- og vestanlands og hiti 3 til 8 stig. Næturfrost víða um land.

Á miðvikudag:
Hæg breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Hiti til 2 til 9 stig að deginum, hlýjast á Suðvesturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert