Leita ökumanns bifhjóls sem ók á konu á reiðhjóli

Lögreglan hvetur ökumanninn til að gefa sig fram.
Lögreglan hvetur ökumanninn til að gefa sig fram. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifhjóls sem ók á konu á reiðhjóli á göngustíg í Elliðaárdal, norðan Stekkjarbakka beint fyrir neðan húsið Skálará, í gær.

Slysið varð kl. 15.30. Ökumaður bifhjólsins mun hafa numið staðar örstutt á vettvangi til að taka upp brak úr bifhjólinu, en síðan ekið áfram eftir göngustígnum til austurs án þess að kanna nokkuð með ástand konunnar. Hún var flutt á slysadeild og reyndist hafa handleggbrotnað við áreksturinn, að því er segir í facebook-færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi,” segir í færslunni.

Þar er ökumaður bifhjólsins hvattur til að gefa sig fram. Hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru þeir beðnir um að hafa samband í síma 444-1000. Einnig má senda upplýsingar á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert