Sá grunaði áfram í farbanni

Maður fannst látinn utan við íbúð í Vindakór í Kópavogi.
Maður fannst látinn utan við íbúð í Vindakór í Kópavogi. mbl.is/Árni Sæberg

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag, í Héraðsdómi Reykjaness, úrskurðaður í áframhaldandi átta vikna farbann eða til 2. júlí, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn er sakborningur í rannsókn á manndrápi í Kópavogi í byrjun síðasta mánaðar. 

Farið var fram á áframhaldandi farbann yfir manninum í þágu rannsóknar málsins. 

Rannsókn málsins miðar vel að því er fram kemur í yfirlýsingu frá lögreglu en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert