Býður sig fram í 2. sæti

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík.

Frá þessu greinir Brynjar á Facebook, þar sem hann segist stefna á að verða í framvarðarsveit flokksins í höfuðborginni.

„Hugmyndir mínar og grundvallarafstaða til þess hvernig þjóðfélagið á að þróast fara mjög vel saman við stefnu Sjálfstæðisflokksins. Bjargföst er trú mín á einstaklinginn, dugnað hans, áræðni og sköpunarkraft. Við þurfum að skapa umhverfi til að atvinnulífið getið notið kraftsins sem býr í einstaklingnum og þannig skapað velferð sem allir njóti,“ skrifar Brynjar.

Sóknarfæri

Hann tekur fram að flokkurinn eigi sóknarfæri í komandi kosningum.

„Við sjálfstæðismenn verðum að tala fyrir stefnunni sem byggist á okkar pólitísku sýn og forðast að festast í dægurumræðu og skyndilausnum. Tölum skýrt, komum hreint fram og sýnum kjark og þor.

Eg vil skora á ykkur öll og aðra sem vilja hafa áhrif á uppstillingu á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík að taka þátt í prófkjörinu. Einnig vil ég skora á sem flesta að bjóða sig fram. Margir öflugir frambjóðendur og góð þátttaka mun styrkja flokkinn fyrir komandi kosningar í haust.“

Fyrir kosningarnar árið 2016 sóttist Brynjar eftir þriðja sæti.

Þá vék hann árið 2017 fyrir Sigríði Á. Andersen í Reykjavíkurkjördæmi suður, og færði sig úr oddvitasæti niður í annað sætið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert