Tækjageymsla í Hveragerði eyðilagðist í eldsvoða

NLFÍ Hveragerði.
NLFÍ Hveragerði. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson

Eldur varð í tækjageymslu við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði í kvöld, með þeim afleiðingum að geymslan eyðilagðist. Mikill viðbúnaður var á svæðinu og allt tiltækt slökkvilið í nágrenninu kallað út.

Sunnlenska.is greinir frá.

Neyðarlínunni barst tilkynning um eldinn kl. 21:07, en um klukkutíma síðar hafði slökkviliði tekist að ráða niðurlögum eldsins að mestu leyti. Slökkvistarfi er nú alveg lokið á svæðinu, að því er segir í facebookfærslu brunavarna Árnessýslu.

Mikinn reyk lagði yfir Hveragerði

Í samtali við sunnlenska.is lýsti Lárus Kristinn Guðmundsson, starfandi varaslökkviliðsstjóri, aðkomu slökkviliðs en eldur var í einum bílskúr á svæðinu og talsvert um reyk að hans sögn.

„Það eru fimm bílskúrshurðir hérna og það var reykur kominn í öll rýmin en hann var aðallega í miðjurýminu og síðan breiddist hann um þakið,“ sagði Lárus Kristinn Guðmundsson við sunnlenska.is, en hann stjórnaði aðgerðum á vettvangi.

Húsið sé gamalt og geymi bæði bensín og plastvörur. Því hafi mikinn reyk lagt frá því sem barst yfir hluta bæjarins. Slökkvistarf hafi þó gengið vel.

20-25 slökkviliðsmenn tóku þátt í aðgerðunum, en allt tiltækt lið brunavarna Árnessýslu var kallað út, auk tveggja hópa frá Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert