Þurfti að hægja á sér vegna vinnuvélar

Fremri vagninn sem ekið var á í morgun.
Fremri vagninn sem ekið var á í morgun. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson

Slysið í Ártúnsbrekkunni í morgun þegar tveir strætisvagnar rákust saman varð þegar annar vagninn þurfti að hægja á sér vegna vinnuvélar sem var á götunni.

Hinn náði ekki að bregðast nógu hratt við og lenti aftan á vagninum með þeim afleiðingum að flytja þurfti bílstjórann á slysadeild.

Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, kveðst ekki vita hversu alvarleg meiðslin eru. Honum þykir líklegt að vagninn sé ónýtur.

Strætisvagninn er illa farinn eins og sjá má á myndinni.
Strætisvagninn er illa farinn eins og sjá má á myndinni. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson

Vagnarnir voru á akstri í vesturátt á leiðinni að Hlemmi frá höfuðstöðvum Strætós í Hesthálsi þegar slysið varð rétt fyrir klukkan 7 í morgun. Engir farþegar voru í vögnunum, sem voru merktir „Ekki á leið“. Að Guðmundar röskuðust áætlanir 1 og 2 fyrir vikið.

Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að búið sé að fjarlægja strætisvagninn sem skemmdist illa af vettvangi og hafa viðbragðsaðilar lokið störfum.

Uppfært kl. 11.46:

Í fyrri útgáfu fréttarinnar kom fram að vagnstjórinn hafi þurft að hemla en hið rétt er að hann hægði á sér vegna vinnuvélarinnar. Þegar hann var að færa sig yfir frá hægri akrein yfir á þá vinstri lenti hinn strætisvagninn á honum, að sögn Guðmundar Heiðars.

Horft yfir Vesturlandsveg nú á tíunda tímanum þegar umferðin var …
Horft yfir Vesturlandsveg nú á tíunda tímanum þegar umferðin var aftur orðin með eðlilegum hætti. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert