Óvissustig vegna hættu á gróðureldum á Norðurlandi vestra

Sinubruni í Heiðmörk 4. maí síðastliðinn.
Sinubruni í Heiðmörk 4. maí síðastliðinn. Eggert Jóhannesson

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjórana á Norðurlandi vestra, hefur ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum.

Segir í fréttatilkynningu að þessi ákvörðun sé byggð á því að lítið hafi rignt á svæðinu undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu að ráði.

„Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings,“ segir í tilkynningu.

Almenningur er hvattur til að sýna aðgát með opinn eld á þessum svæðum og öðrum þar sem gróður er þurr. Bent er á að ekki þurfi mikinn neista til þess að af verði stórt bál.

Hringja skal strax í 112 ef fólk verður vart við gróðurelda.

Nálgast má frekari upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr hættu af gróðureldum á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og á grodureldar.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert