Þrír greindust á Sauðárkróki

Sauðárkrókur í Skagafirði.
Sauðárkrókur í Skagafirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Þrír af þeim fimm sem greindust með kórónuveirusmit í gær eru búsettir á Sauðárkróki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna í landshlutanum.

Allir fimm sem greindust á landinu í gær voru í sóttkví, eins og mbl.is greindi frá í morgun, en þá fékkst ekki upp gefið hjá almannavörnum hvar smitin hefðu greinst.

Alls hafa fjórtán greinst með kórónuveirusmit á Norðurlandi vestra undanfarna viku.

Í tilkynningunni segir að á næstu tveimur dögum eigi staðan að skýrast betur. Á sama tíma muni þeim væntanlega fækka sem eru í sóttkví.

„Vonum það besta,“ skrifar aðgerðastjórnin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert