Opnað fyrir umsóknir um úthlutun úr Matvælasjóði

Matvælasjóði er ætlað að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu …
Matvælasjóði er ætlað að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um úthlutanir úr Matvælasjóði, sem ætlað er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu, eins og segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn auglýsir um úthlutun, en í ár fær sjóðurinn 250 milljóna króna viðbótarframlag og er heildarúthlutunarfé sjóðsins því 630 milljónir króna.

„Með stofnun Matvælasjóðs í fyrra vorum við í krafti nýsköpunar og þróunar að hvetja til aukinnar verðmætasköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Það hefur sjaldan verið eins brýnt og nú enda lykilatriði í kjölfar Covid-faraldursins að okkur takist að auka verðmætasköpun um allt land. Því er ég sannfærður um að sú úthlutun sem er fram undan geti orðið mikilvægur liður í þeirri efnahagslegu viðspyrnu sem fram undan er,“ er haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í tilkynningu ráðuneytisins.

Úthlutanir úr sjóðnum flokkast í fernt:

  • Bára – úthlutun fyrir verkefni á hugmyndastigi.
  • Kelda – úthlutun fyrir rannsóknarverkefni.
  • Afurð – úthlutun fyrir verkefni sem eru komin lengra en hugmyndastig en þó ekki tilbúin til markaðssetningar.
  • Fjársjóður – úthlutun til fyrirtækja sem nú þegar eru með verðmæti á markaði, til þess að koma þeim á framfæri.

„Ég tel að sjóðurinn skapi gríðarlega eftirsóknarverð tækifæri til að vinna að þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og afurða tengdum þeim en jafnframt  opni á ný tækifæri á sviði rannsókna og í markaðssetningu. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á umsóknum og þá einna helst í flokknum Báru, þeim flokki sem flestar umsóknir bárust í við síðustu úthlutun en í þann flokk sækja aðilar sem eru enn með sínar hugmyndir á frumstigi en vilja fá stuðning til að greina og meta hvort sú hugmynd sem um ræðir sé fýsileg.
Umsóknarferlið hefur verið einfaldað og skýrt og vonandi sjáum við margar forvitnilegar hugmyndir koma inn í þennan flokk sem og hina þrjá, Keldu, Afurð og Fjársjóð.
Stjórn og starfsfólk sjóðsins hlakkar mikið til að takast á við vinnu við þær umsóknir sem eiga eftir að berast í sjóðinn enda greinilegt af þeim fjölda umsókna sem bárust í fyrstu úthlutun að mikið er í gangi í nýsköpun og þróun í íslenskri matvælavinnslu og mikil hugmyndaauðgi og vöruþróun í gangi í landinu,“ er haft eftir Margréti Hólm Valsdóttur, stjórnarformanni Matvælasjóðs.

Auk hennar sitja í stjórn Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Gunnar Þorgeirsson og Karl Frímannsson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert