Vann stóra pottinn í annað sinn á þremur árum

Maðurinn hafði valið sömu tölur um skeið.
Maðurinn hafði valið sömu tölur um skeið.

Sunnlendingur skráði sig í sögubækurnar sem einn heppnasti Íslendingur síðari tíma þegar hann reyndist vera einn með allar tölurnar réttar í Lottóinu í annað skipti á rúmum þremur árum.

Í þetta skipti færðu heilladísirnar honum rúmar 10 skattfrjálsar milljónir króna á miða sem keyptur var á lotto.is, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Maðurinn segist hafa valið sömu tölur um skeið eftir að hafa fyllst sérstakri tilfinningu þegar hann fékk þær í sjálfvali á sínum tíma.

„Við sjáumst svo aftur eftir þrjú ár,“  sagði hann og brosti þegar hann kvaddi höfuðstöðvar Íslenskrar getspár eftir að hafa fengið vinninginn staðfestan í vikunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert