Alræmd slysabrú aflögð

Brúin yfir Núpsvötn. Brúin er 420 metra löng og einbreið, …
Brúin yfir Núpsvötn. Brúin er 420 metra löng og einbreið, byggð árið 1973. Hún stenst ekki nútímaöryggiskröfur og því er talin mikil þörf á nýrri brú. Ljósmynd/Vegagerðin

Vegagerðin hyggt á næstu vikum bjóða út tvö viðamikil verk í Skaftárhreppi. Um er að ræða nýjar tvíbreiðar brýr yfir Hverfisfljót og Núpsvötn og tilheyrandi vegagerð. Verkin verða boðin út saman.Tæpir 17 kílómetrar eru á milli þessara tveggja vatnsfalla. Búist er við að framkvæmdir hefjist á árinu 2021 og að umferð verði hleypt á nýju brýrnar haustið 2022.

Nýju brýrnar munu leysa af hólmi einbreiðar brýr á Hringvegi, þar sem mörg alvarleg bílslys hafa orðið. Umferðaröryggi á svæðinu mun stóraukast við þessar framkvæmdir.

Umferð hefur farið vaxandi á undanförnum árum vegna fjölgunar erlendra ferðamanna. Skipulagsstofnun hefur tekið þá ákvörðun að þessar framkvæmdir þurfi ekki að fara í umhverfismat, enda hafi framkvæmdasvæðum áður verið raskað við fyrri vegaframkvæmdir.

Vegagerðin hefur kynnt opinberlega fyrirhugaðar framkvæmdir við nýja 150 metra langa tvíbreiða brú á Hringvegi (1) um Núpsvötn í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu. Í tengslum við byggingu nýrrar brúar verður Hringvegurinn endurbyggður í nýrri legu á um tveggja kílómetra löngum kafla. Nýja brúin verður norðan við núverandi brú og færist veglína Hringvegarins u.þ.b. 100 metra til norðurs, þar sem mest er.

Kostar rúman milljarð

Búist er við að verktakakostnaður við byggingu brúar á Núpsvötn, ásamt vegtengingum, verði rúmlega 1.000 milljónir króna. Framkvæmdirnar verða fjármagnaðar á samgönguáætlun, með sérstakri fjármögnun Vegagerðarinnar eða hvort tveggja. Vegna umfangs verksins má reikna með að nokkur fjöldi starfa skapist á framkvæmdartíma. Reikna má með um 20 störfum í um níu mánuði vegna brúar- og vegavinnu á svæðinu.

Í greinargerð kemur fram að nýja brúin yfir Núpsvötn verði grunduð á steyptum staurum sem reknir verða niður í árfarveginn. Samtals þarf að reka niður staura á um 200 stöðum og þar sem staurarnir eru tvískiptir verði um að ræða u.þ.b. 400 staura sem hver er 10-12 metra langur.

Tilboð í framleiðslu og flutning á steyptum niðurrekstrarstaurum fyrir brú á Núpsvötn voru opnuð 6. apríl sl. Eitt tilboð barst, frá Steypustöðinni ehf. í Borgarnesi. Hljóðaði það upp á krónur 68.046.294, sem var 91% af kostnaðaráætlun, sem var tæpar 75 milljónir króna.

Sökklar og stöplar nýju brúarinnar verða steyptir landstöplar í báðum endum brúarinnar og fjórir stöplar á milli þeirra.Yfirbygging verður steypt. Brúin verður tvíbreið og hönnuð fyrir 90 km/klst. hámarkshraða. Hún verður 10 metra breið með níu metra breiðri akbraut og 0,5 metra breiðum bríkum.

Einnig verður byggður nýr áningarstaður vestan Núpsvatna. Á þessum stað er fallegt útsýni í vesturátt að Lómagnúpi og austurátt að Öræfajökli og því er nauðsynlegt talið að byggja nýjan öruggan áningarstað. Enginn áningarstaður er við núverandi brú en ökumenn hafa freistast til að stoppa í vegköntum og taka myndir. Hönnun áningarstaðarins tekur mið af nýjum áningarstað sem fyrirhugaður er við Hverfisfljót. Gert er ráð fyrir stæðum fyrir rútu, húsbíla og 10 fólksbíla, þar af einu stæði fyrir hreyfihamlaða. Með nýjum áningarstað verður sköpuð öruggari aðstaða fyrir vegfarendur til að njóta útsýnisins.

Gamla brúin yfir Núpsvötn verður látin standa til að byrja með en mokað frá henni við báða enda. Til framtíðar er litið til þess að rífa brúna, reyndar ásamt fleiri brúm en það er verulega kostnaðarsamt að rífa hana. Þarf sérstaka fjárveitingu til þess, upplýsir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breytingar á Hringvegi um Núpsvötn í Skaftárhreppi skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum. Almenningur getur kynnt sér niðurstöðuna á skipulag.is.

Slysið 2018. Aðkoma á slysstað var skelfileg. Nær 50 manns …
Slysið 2018. Aðkoma á slysstað var skelfileg. Nær 50 manns komu að hjálparstarfi. Ljósmynd/Adolf Ingi Erlingsson

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 7. júní.

Sem fyrr segir verða þessi tvö verkefni boðin út saman. Skipulagsstofnun hefur áður úrskurðað um brúna yfir Hverfisfljót. Morgunblaðið fjallaði ítarlega um hana 21. nóvember 2020. Sú brú verður 74 metrar að lengd.

Mörg alvarleg slys hafa orðið

Núverandi einbreið brú yfir Núpsvötn er 420 metra löng stálbitabrú með timburgólfi og var byggð árið 1973. Eftir að Súla hætti að renna í Núpsá og færðist yfir í Gígjukvísl eru hlaup hætt að koma í Núpsvötn. Því er ekki lengur talin þörf á svo langri brú, að mati Vegagerðarinnar. Frá aldamótum hafa alls orðið 13 slys við brúna yfir Núpsvötn. Þar af var eitt slys í desember 2018 þar sem þrír létust og fjórir slösuðust þegar jeppabifreið var ekið út af brúnni. Þetta voru breskir ríkisborgarar af indverskum uppruna. 
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 13. maí. 
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert