Hundruð mótmæla Ísraelsher og stefnu stjórnvalda

Frá Austurvelli í dag.
Frá Austurvelli í dag. mbl.is/Sigurður

Hundruð manna eru samankomin á Austurvelli til þess að mótmæla árásum Ísraelshers gegn Palestínumönnum og þrýsta á íslensk stjórnvöld um að leggja viðskiptabann á Ísrael. Mótmælafundurinn hófst klukkan 13 og hafði verið auglýstur á samfélagsmiðlum. 

Samkvæmt upplýsingum viðstaddra, sem meðal annars spurðu lögreglu álits, má ætla að á þriðja eða fjórða hundrað séu viðstaddir. 

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, flutti ávarp.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, flutti ávarp. mbl.is/Sigurður

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hélt ræðu í upphafi fundar eins og auglýst var. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur enda fordæmt Ísraelsher og það hefur þingflokkur Vinstri-grænna gert sömuleiðis. 

Þá hélt einnig ræðu Falasteen Abu Libdeh.

Frá Austurvelli í dag.
Frá Austurvelli í dag. mbl.is/Sigurður

Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir mótmælafundinum og hefur félagið krafist þess að stjórnvöld setji viðskiptabann á Ísrael, þar til landtöku þeirra á landi Palestínubúa verði hætt, þjóðernishreinsunum Ísraela gegn Palestínu verði hætt og loks linnulausum árásum Ísraelshers á Gaza-ströndinni verði hætt. 

Yfirskrift fundarins er „Stöðvum blóðbaðið“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert