Sjávarsafnið formlega lagt niður

Á myndinni eru frá vinstri Viktoría Sif Viðarsdóttir fulltrúi Lífsbjargar, …
Á myndinni eru frá vinstri Viktoría Sif Viðarsdóttir fulltrúi Lífsbjargar, Pétur Bogason fulltrúi sóknarnefndar Ólafsvíkursóknar, Vagn Ingólfsson fulltrúi Skógræktarfélags Ólafsvíkur, Guðrún Tryggvadóttir fulltrúi Ólafsvíkurréttar og Pétur Steinar Jóhannsson fulltrúi Sjómannagarðsins. Ljósmynd/Aðsend

Sjávarsafnið á Norðurtanga í Ólafsvík hefur nú formlega verið lagt niður, en lítil sem engin starfsemi hefur verið í safninu undanfarin ár. Fram kemur í tilkynningu að fyrir nokkru hafi orðið ljóst að ekki yrði rekið safn í húsnæði safnsins. 

Þótti stjórn safnsins því eðlilegt að þeir fjármunir sem eftir stæðu, þegar búið væri að greiða skuldir safnsins og kostnað við að leggja félagið niður, yrðu látnir renna aftur til samfélagsins. Meginástæða þess er að uppbygging og rekstur safnsins hefur frá upphafi hefur verið fjármagnaður með styrkjum frá opinberum sjóðum og Snæfellsbæ auk ómetanlegs stuðnings fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga.

Styrkirnir voru afhentir fimmtudaginn 29. apríl síðastliðinn á veitingahúsinu Skeri. Í ræðu við þetta tækifæri sagði Jóhannes Ólafsson frá því að sjávarsafnið var stofnaði í október árið 2000 og hófust framkvæmdir árið eftir, boruð var borhola til að fá sjó inn í húsnæði safnsins og smíðuð þrjú 4.500 lítra búr og tvö 1.500 lítra búr. Var fljótlega bætt við nokkrum minni búrum fyrir smærri lífverur úr sjó og fjöru, smíðaðar innréttingar og farið í framkvæmdir til að verja húsnæðið fyrir veðri og vindum.

Til að byrja með gekk erfiðlega að fá fiskana til að lifa en með góðum vilja, frjóu ímyndunarafli og samstarfi við líffræðinga voru fundnar lausnir sem skiluðu árangri. Hafði stjórn safnsins uppi stórar hugmyndir um safn að erlendri fyrirmynd en til að þær hefðu getað gengið eftir hefði safnið þurft að hafa mjög mikið fjármagn, sem það hafði ekki aðgang að.

Eftir að ljóst var að ekki var grundvöllur fyrir fiskasafni gerði stjórn safnsins ítrekaðar tilraunir til að fá menningar- eða ferðaþjónustutengda starfsemi í húsið. Gekk það ekki eftir og húsið því sett á sölu og fékkst kaupandi að því haustið 2018, fyrir jólin 2018 var úthlutað 5 milljónum til verkefna í nærsamfélaginu og núna var úthlutað 5,8 milljónum, samtals hefur stjórn Sjávarsafnsins því styrkt verkefni um 10,8 milljónir.

Þau málefni sem fengu styrk að þessu sinni voru:

Sjómannagarðurinn í Ólafsvík, 3.600.000 vegna breytinga í garðinum.

Ólafsvíkurkirkja, 900.000 í sjóð til að bæta aðgengi fatlaðra.

Uppbygging Ólafsvíkurréttar 300.000 til áframhaldandi uppbyggingar.

Skógræktarfélag Ólafsvíkur 500.000 og Björgunarsveitin Lífsbjörg 500.000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert