Framkvæmdir við Reykjanesbraut á morgun

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni má búast við töfum á Reykjanesbraut …
Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni má búast við töfum á Reykjanesbraut milli Voga á Vatnsleysuströnd og Vatnsleysustrandarvegar milli kl. 6 og 19. Ljósmynd/Vegagerðin

Stefnt er á framkvæmdir við Reykjanesbraut á morgun milli 6-19 á kaflanum á milli Voga á Vatnsleysuströnd og Vatnsleysustrandarvegar. Búast má við töfum á meðan framkvæmdum stendur.

Áætlaðar framkvæmdir eru fræsun og malbikun á hægri öxl Reykjanesbrautarinnar til austurs, samsíða akrein verður lokað og hámarkshraði lækkaður hjá framkvæmdasvæði, þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Framkvæmdirnar verða á milli Voga á Vatnsleysuströnd og Vatnleysustrandarvegar.
Framkvæmdirnar verða á milli Voga á Vatnsleysuströnd og Vatnleysustrandarvegar. Kort/Vegagerðin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert