IKEA innkallar borðbúnað

Borðbúnaðurinn sem hefur verið innkallaður.
Borðbúnaðurinn sem hefur verið innkallaður. Ljósmynd/IKEA

IKEA hefur ákveðið að innkalla Heroisk og Talrika borðbúnað vegna hættu á að hann brotni og valdi hugsanlega bruna ef innihaldið er heitt. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá IKEA. 

Þeir sem eiga borðbúnað af þessum gerðum eru beðnir um að taka hann úr notkun og skila í IKEA þar sem hann verður að fullu endurgreiddur.

IKEA hvetur alla sem eiga Heroisk og Talrika diska, skála og bolla til að skila þeim og fá að fullu endurgreitt. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert