Þóttist vera jarðfræðingur

Antony Blinken og Katrín Jakobsdóttir í Hörpu fyrr í dag.
Antony Blinken og Katrín Jakobsdóttir í Hörpu fyrr í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eitt þeirra mála sem bar á góma í samtali Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Antonys Blinkens, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var eldgosið í Geldingadölum.

Blinken sagðist hafa séð eldgosið úr fjarska er hann ók þar framhjá.

„Ég þóttist vera jarðfræðingur þannig að ég útskýrði þetta allt,“ sagði Katrín hress í bragði að loknum fundi þeirra í Hörpu.

Blinken hafði sagt henni að enginn hefði útskýrt gosið fyrir honum og tók hún það því að sér með glöðu geði.

Eldgosið í Geldingadölum.
Eldgosið í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ræddu faraldurinn og Ísrael/Palestínu

Á meðal annarra mála sem þau ræddu voru kórónuveirufaraldurinn og hvað Bandaríkin og Ísland geti gert til að aðstoða við bólusetningu í heiminum öllum.

Sömuleiðis var ný stefna Bandaríkjanna í loftslagsmálum rædd og sérstaklega ræddu þau um möguleikann þegar kemur að kemur nýsköpun og samstarfi í þeim málum.

Staðan fyrir botni Miðjarðarhafs var rædd og ítrekaði Katrín það sem kom fram á blaðamannafundi Blinkens með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra í hádeginu um að Bandaríkin hvetja til vopnahlés á milli Ísraela og Palestínumanna. 

„Ég fór yfir afstöðu íslenskra stjórnvalda og hvernig við sæjum þessi mál. Við hefðum viðurkennt Palestínu sem sjálfstætt ríki og lögðum áherslu á tveggja ríkja lausn og að það væri mjög mikilvægt að stórveldi beittu sér,“ greindi Katrín frá.

Kynjajafnrétti og málefni norðurslóða voru einnig rædd.

Antony Blinken í Hörpu.
Antony Blinken í Hörpu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Spurð hvort eitthvað hefði komið á óvart í viðræðunum nefndi Katrín tvennt:

„Það er mjög breyttur tónn í loftslagsmálum og mikill áhugi á möguleikum þar og auknu samstarfi á þeim vettvangi. Sömuleiðis var áhugi, sem er ánægjulegt, að ræða jafnréttismál því venjulega erum það bara við sem höfum áhuga á því,“ sagði Katrín, sem minntist á sömu mál í fréttatilkynningu sem var gefin út að loknum fundinum. 



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert