Tveimur bæjum bætt á garnaveikilista

Fyrr á árinu var garnaveiki staðfest í kind á bæ í Suðurfjarðahólfi, nánar tiltekið á Lindarbrekku í Djúpavogshreppi. Í því hólfi hefur garnaveiki greinst í sauðfé á einum öðrum bæ síðastliðin 10 ár. Bólusetningarskylda gildir nú fyrir allt Suðurfjarðarhólf. Barká í Hörgársveit, sem tilheyrir Tröllaskagahólfi, bætist einnig við garnaveikilistann. Ástæðan er að bólusetning hefur verið vanrækt á bænum en sjúkdómurinn hefur ekki greinst þar. Þetta kemur fram á vef MAST.

Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé og geitur fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki. Á bæjum sem eru á lista yfir garnaveiki gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu.

Tilfellið á Lindarbrekku uppgötvaðist eftir að bóndi í samráði við héraðsdýralækni hjá Matvælastofnun sendi sýni til greiningar á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum úr tveimur ám sem höfðu verið að dragast upp. Annað sýnið var jákætt en hitt neikvætt. Jákvæða sýnið var úr kind sem var 2,5 vetra og sýndi einkenni sjúkdómsins. Einnig voru sýni tekin til rannsóknar á riðuveiki en þau reyndust neikvæð. Bólusetningarskylda gildir nú fyrir allt Suðurfjarðarhólf.

„Orsök sjúkdómsins er lífseig baktería af berklaflokki (Mycobacterium paratuberculosis). Helstu einkenni hans eru hægfara vanþrif, stundum með skituköstum. Í þeim hjörðum sem veikin kemur upp í getur einnig verið þó nokkuð um „heilbrigða smitbera“. Það eru smitaðar kindur án einkenna sem skilja út mikið af smitefninu. Meðgöngutími í sauðfé og geitum er 1-2 ár eða lengri. Garnaveikibakterían veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saurnum og geta lifað í 1- 1½ ár í óhreinindum og pollum umhverfis gripahús, við afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast út um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni,“ segir á vef MAST.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert