Verja 20 milljónum í hækkunina

Tilgangur framkvæmdanna er að varna því að hraun flæði úr …
Tilgangur framkvæmdanna er að varna því að hraun flæði úr eldgosinu niður í Nátthaga og verja þannig Suðurstrandaveg og ljósleiðara sem liggur í mynni Nátthaga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að verja allt að 20 milljónum króna til þess að hækka varnargarða fyrir ofan Nátthaga. Nú þegar hafa verið reistir tveir fjögurra metra háir varnargarðar og verða þeir hækkaðir í allt að átta metra.

Tilgangur framkvæmdanna er að varna því að hraun flæði úr eldgosinu niður í Nátthaga og verja þannig Suðurstrandaveg og ljósleiðara sem liggur í mynni Nátthaga, að því er stjórnvöld greina frá.

Fylgst er með þróun hraunrennslis og hefur hrauntjörn verið að fyllast ofarlega í Nafnlausadal. Óljóst er hversu mikið álag kæmi á varnargarðana ef fyrirstaða hrauntjarnarinnar brestur skyndilega og lagði almannavarnadeild ríkislögreglustjóra því til hækkun garðanna. Ekki er gert ráð fyrir að lengra verði gengið í hækkun þeirra, segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert