Nýtt þrívíddarlíkan af eldgosinu

Fjölmenni skoðar haunflæðið í Geldingadölum.
Fjölmenni skoðar haunflæðið í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nýtt þrívíddarlíkan af eldgosinu við Fagradalsfjall hefur verið birt á facebooksíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Myndirnar voru teknar í gær.

Samkvæmt upplýsingum Jarðvísindastofnunar mælist hraunið nú 38,3 milljónir rúmmetra, sem er um átta milljónum meira en í síðustu mælingu.

Hvað flatarmálið varðar er það núna 2,06 ferkílómetrar en fyrir viku mældist það 1,8 ferkílómetrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert